db_logo3

 

BuiltWithNOF
Ýmislegt um streitu

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Ýmislegt um streitu

 

Streita er stöðug viðleitni líkama og sálar að aðlagast síbreytilegum aðstæðum. Eðlileg viðbrögð við streitu er viðleitni einstaklingsins til að endurvinna það jafnvægi sem streitan hefur raskað.

Streita í ákveðnu mæli er manninum nauðsynleg og raunverulega það afl sem knýr hann til sjálfsbjargar og andlegs þroska. Streita þarf ekki að vera skaðleg, hún er einnig krydd lífsins. Sérhver tilfinning og allar gerðir valda streitu. Mikil, linnulaus og langvarandi streita leiðir til ýmis konar vanlíðunar og veikinda.

Utanaðkomandi streituvaldar:

Hungur – hiti – kuldi – slys – stríð - umferðarhraði.

Innri streituvaldar:

Tilfinningar – hugrenningar s.s. áhyggjur – samkeppni – samanburður.

Einmanaleiki er öflugur streituvaldur, sem er bæði af innri og ytri orsökum.

Það er ekki alltaf streituvaldurinn sjálfur sem ræður viðbrögðunum við honum, heldur miklu frekar eigin upplifun á atburðinum. Við erum mjög mismunandi næm fyrir streituáhrifum frá degi til dags.

 Tilfinningin um að vera spenntur er flestum kunn. Þessi tilfinning kemur þegar ytri áhrif vekja innri viðbrögð s.s. prófskrekkur – verkkvíði – tilhlökkun. Þannig viðbrögð eru skaðlaus séu þau viðráðanleg og tímabundin. Það jákvæða við þessi viðbrögð er að hægt er að virkja það afl sem þarna losnar til þess að takast á jákvæðan hátt á við verkefnið.

Viðbrögð við streitu:

 Líkamleg: Tilfinningaleg:  Greindarfarsleg:

 Blóðþrýstingur/púls Kvíði/hræðsla  Minnkuð einbeiting.

 Vöðvaspenna Pirringur/gremja/kvíði Gleymska.

 Svefntruflanir  Eirðarleysi   Sljóvguð dómgreind.

 Stöðug þreyta Óþolinmæði   Hugsun beinist að liðinni tíð, minna að nútíðinni.

 Minnkuð mótstaða Tortryggni

 Sjúkdómum.  Áhugaleysi

 Þunglyndi

Algengir streituvaldar:

Tímaskortur – of mikið vinnuálag – breytilegur vinnutími – vaktavinna – óöryggi á vinnumarkaði – atvinnuleysi – lélegur aðbúnaður á vinnustað – slæmur starfsandi – of mikil/of lítil ábyrgð í starfi – vandamál í einkalífi – fjárhagur – fjölskylduerfiðleikar.

Lífsbreytingar

(Shclossberg 1989)

Kjósum eða búumst við:

Útskrifast – Flytjast búferlum – Skipta um vinnu – Eignast fjölskyldu – Eignast barn – Starfslok – Börn flytjast að heiman.

Koma á óvart: Slys – Happdrættisvinningur – Stöðuhækkun – Missir barns/maka/atvinnu.

Óskum eftir en gerist síðan ekki:

Óskum eftir barni/ófrjósemi.

Vonumst eftir stöðuhækkun/gerist ekki.

Börnin fara að heiman/fara ekki – eða koma aftur.

Ánægja og lífsfylling í hjónabandi/erfiðleikar – skilnaður.

Gleði og ánægja varðandi uppeldi/erfiðleikar – veikindi.

Heilbrigði/veikindi.

Vonast til að eignast maka/enginn finnst.

Hamingja/óhamingja.

Óljóst upphaf:

Grenntist/fitnaðir – Ofneysla áfengis – Varðst ástfangin/n – Vinnan varð ómöguleg – Ánægja/óánægja með eitthvað.

Keðjuverkandi:

Starfslok/missir maka.

Giftast/verða stjúpforeldri/stöðuhækkun.

Barnsfæðing/alvarleg veikindi/erfiðleikar á heimili.

Annast heimili/aldraða foreldra/unglinga/fjárhagsvandamál.

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Gefðu þér] [Stattu með þér] [Til að setja á spegilinn] [Leiðir til sjálfsumönnunnar] [Um kvíða] [Að minnka kvíða] [Einkenni meðvirkni] [Að forðast meðvirkni] [Hlutverk í fjölskyldum] [Dæmi um hlutverk] [Mannrækt] [Matarfíkn] [Einkenni áfallastreitu] [Álagsstreita] [Streita] [Streitulosun] [Skýr tjáskipti] [Vandamál] [Vinsamleg tilmæli] [Þunglyndi] [Ýmislegt um streitu] [Ýmis ráð] [Setja mörk] [Sjálfstyrking] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]