db_logo3

 

BuiltWithNOF
Veggurinn er vitnið

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Veggurinn er vitnið

 Ofbeldi sem þrífst í þögninni

Margrét V. Helgadóttir

 

Heimilisofbeldi er eitt best geymda leyndarmál samfélagsins. Allir vita að það viðgengst en fáir vilja ræða það opinberlega. Við getum horft til Bandaríkjanna og séð að umræðan um heimilisofbeldi er opinská. Hollywood hetjurnar tjá sig hver á fætur annarri um ofbeldi sem þær eru beittar af maka sínum. Pamela Anderson, kynbomba með meiru, er eitt þekktasta dæmið. Annað nærtækt dæmi er O.J. Simpson og morðið á fyrrverandi eiginkonu hans. En það eru ekki bara frægu hetjurnar í Ameríku sem verða fyrir ofbeldi. Staðreyndin er sú að heimilisofbeldi er mjög algengt á Íslandi. Á hverju ári leita hundruð kvenna á náðir Kvennaathvarfsins. Fjöldi fólks leitar til slysadeilda með áverka eftir maka sinn. Tugir ef ekki hundruð barna verða fyrir ofbeldi foreldra sinna á ári hverju. Af hverju má þá ekki tala opinskátt um þessa hlið ofbeldis?

 Ástæðan er einföld. Ofbeldið á sér stað innan veggja heimilisins, í okkar helgasta vígi. Stjórnarskráin undirstrikar hversu heilagt heimilið er fjölskyldunni. Það er engin tilviljun að ofbeldisverkin eru framin á heimilunum, lagabókstafurinn teygir sig sjaldnast inn fyrir útidyrnar. Á heimilinu er húsbóndinn lögregla, dómari og böðull. Það sem gerist á heimilinu kemur engum öðrum við, þetta er þín fjölskylda. Valdið er nánast ótakmarkað.

 Ef ofbeldismaður myndi kýla mann í miðri Hagkaupsverslun er líklegt að hann yrði handtekinn og kærður fyrir líkamsárás. Hafi hann hins vegar kýlt eiginkonu sína á sama hátt kvöldið áður heima hjá þeim, hvað væri gert þá? Heimilisofbeldi þrífst einfaldlega á þögninni. Fórnarlömbin eru hrædd við hefnd, segi þau frá því sem gerist. Fjölskyldan er miður sín og veit ekki hvernig á að bregðast við. Þögnin er einfaldasta og sársaukaminnsta leiðin út úr vandanum. Hver vill viðurkenna að barnið sitt beiti sína nánustu ofbeldi? Á sama hátt: hver vill viðurkenna að barnið sitt hafi valið maka sem lemur fjölskylduna sína?

 Götótt kerfi

 Í okkar tölvuvædda samfélagi ættu tölur yfir umfang heimilisofbeldis að vera auðfundar en því fer fjarri. Svo virðist sem kerfinu hafi tekist á mjög markvissan hátt að fela tölur um umfang málaflokksins. Í sjúkraskrám slysadeildar sjúkrahúss Reykjavíkur kemur ekki fram hver hefur beitt ofbeldinu þegar fórnarlömb ofbeldisáverka leita sér aðstoðar, einungis kemur fram hversu margir leita sér aðstoðar vegna ofbeldisáverka. Það var ekki fyrr en á miðju ári 1997 sem tekið var upp nýtt skráningarkerfi með þessum möguleika en sú ársskýrsla er ekki komin út. (Þegar þessi grein er skrifuð?) Hjá lögreglunni í Reykjavík eru einungis skráð útköll í heimahús. Ekki er sérstakur flokkur útkalla sem flokkast undir heimilisofbeldi, þ.e. einstaklingar innan fjölskyldu beita hver annan ofbeldi á einn eða annan háttr. Öll slagsmál í partýjum og ófriður tengdur þeim er í sama flokki og heimiliserjur. Sérfræðingur hjá lögreglunni treysti sér ekki til að leggja mat á hlutfall heimilisofbeldis í þessum tiltekna flokki í skrám lögreglunnar.

Í allri umfjöllun er gjarnan einblínt á konur sem þolendur og karla sem gerendur en vakin skal athygli á því að fjöldi karlmanna á Íslandi er beittur heimilisofbeldi af hendi eiginkvenna sinna, bæði líkamlegu og andlegu. Ástæður fyrir því að jafnaðarmerki er sett á milli kvenna og þolenda heimilisofbeldis geta verið margvíslegar. Sú helsta er trúlega að fleiri konur en karlar eru fórnarlömb. Líkamlega ofbeldið gegn þeim er oft alvarlega en það sem konur beita karla og kemur líffræðilegur munur kynjanna þar inn í. Karlmenn eiga auðveldar með að kúga konur, t.d. með fjárhaqgslegu valdi sínu. Margir karlmenn notfæra sér tímann á meðan konur eru ófrískar til að undirstrika vald sitt og byrja gjarnan að beita ofbeldi á þeim tíma. Bæði konur og karlar beita börn sín ofbeldi. Að nálgast þær tölur er nánast útilokað vegna sömu vandamála og greint var frá hér að framan.

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Mikilvæg persóna] [Ofbeldi] [Rannsókn] [Eflandi eda nidurbrjotandi] [Veggurinn er vitnið] [Ofbeldi í samböndum] [Að ráða lífi og dauða] [Togstreita] [Ofbeldi gegn konum] [Ofbeldi gegn börnum] [Af hverju ofbeldissamband?] [Ummerkjalaust ofbeldi] [Kona hávaxin] [Samskipti] [Opin tjáskipti] [Mótlæti] [Claudia Black] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]