db_logo3

 

BuiltWithNOF
Stattu með þér

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Stattu með þér

 

Það hvernig þú hugsar, hagar þér og hvernig þér líður byggist mest á þér. Sem manneskja getur þú hugsað og hagað þér þannig að það spilli fyrir þér og skapi óþarfa vanlíðan. Ef þú gerir það þá geturðu líka breytt því.

Hugsunin er einn aðallykillinn að lífshamingju þinni. Þér getur fundist hugsun þín svo sjálfsögð að engin ástæða sé til að skoða hana nánar. En það er ekki sjálfsagt hvernig þú hugsar og hvernig þú mótar hugsun þína. Hugarfar þitt getur unnið með þér, en líka á móti þér.

Meginástæðan fyrir óröklegum hugsunum er sú að við erum mannleg. Við höfum tilhneigingu til að hugsa órökrétt. Það kemur sér vel að ná tökum á þeirri tilhneigingu og læra heppilegri hugsun.

Við getum aukið persónuþroska okkar, en við getum ekki breytt öðrum. Við getum talið sjálfsagt að aðrir eigi að breytast, þeir eigi að hlusta betur á okkur og sýna meiri tillitssemi og virðingu. Þar blundar óskhyggjan um að ef bara aðrir breyttust þá yrði allt gott.

 Aðrir munu seint haga sér að minni eða þinni vild. Þeir voru ekki skapaðir eftir okkar uppskrift. Þeir gera það sem þeir gera af ótal ástæðum sem við höfum minnst með að gera. Þú verð kröftum þínum til einskis ef þú reynir að þvinga aðra til að breytast. Þeim kröftum verðu betur til að breyta þér, þínu hugarfari, þinni líðan og hegðun. Þú ræður miklum um þig en ósköp litlu um hina.

Þú færð engin svör um það hvernig þú eigir að lifa, en þú getur fundið nýtilega valkosti. Hver og einn mótar sín markmið í lífinu, tekur sínar ákvarðanir á eigin spýtur og ber ábyrgð á þeim.

JSH október 2000. Punktar úr bókinni “Stattu með þér” eftir Gunnar Hrafn Birgisson

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Gefðu þér] [Stattu með þér] [Til að setja á spegilinn] [Leiðir til sjálfsumönnunnar] [Um kvíða] [Að minnka kvíða] [Einkenni meðvirkni] [Að forðast meðvirkni] [Hlutverk í fjölskyldum] [Dæmi um hlutverk] [Mannrækt] [Matarfíkn] [Einkenni áfallastreitu] [Álagsstreita] [Streita] [Streitulosun] [Skýr tjáskipti] [Vandamál] [Vinsamleg tilmæli] [Þunglyndi] [Ýmislegt um streitu] [Ýmis ráð] [Setja mörk] [Sjálfstyrking] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]