db_logo3

 

BuiltWithNOF
Skipurit

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

 

1. gr.

Félagið heitir Styrkur – úr hlekkjum til frelsis

2. gr.

Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík

3. gr.

Tilgangur félagsins er að vera sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur heimilisofbeldis og aðstandendur þeirra. Eingöngu er um áhugamannafélag að ræða og það mun eigi standa í atvinnurekstri eða stunda fjárhagslega starfsemi.

4. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að koma á sambandi milli fólks með reynslu af heimilisofbeldi, opna umræðuna í þjóðfélaginu og gera þolendur sýnilega, veita andlegan stuðning með umræðum og miðla af reynslu félagsmanna.

5. gr.

Stofnfélagar eru: Hjördís H. Guðlaugsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir

G. Helga Harðardóttir

Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir

Þóra Björg Guðjónsdóttir

6. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum þ.e. formanni og 4 meðstjórnendum. Það er ekki skilyrði fyrir stjórnarsetu að stjórnarmeðlimir séu þolendur heimilisofbeldis. Stjórnarmenn skulu kosnir til 2 ára í senn á aðalfundi en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi til eins árs í senn. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Halda skal stjórnarfund krefjist tveir eða fleiri stjórnarmenn þess.

Daglega umsjón félagsins annast formaður stjórnar.

Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta stjórnar.

7. gr.

Starfstímabil félagsins og reikningsár er almanaksárið. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok maímánaðar ár hvert. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Ársreikningar skulu liggja frammi á aðalfundi.

8. gr.

Tekjur félagsins eru eingöngu frjáls framlög.

9. gr.

Félagsmenn teljast þeir sem mæta á fundi hverju sinni. Ekki verður haldin sérstök félagaskrá.

10. gr.

Samþykktum þessum verður einungis breytt á aðalfundi félagsins. Breytingatillögur skulu liggja frammi hjá formanni stjórnar félagsins viku fyrir boðaðan aðalfund og einnig vera aðgengilegar á heimasíðu félagsins á Vefnum frá sama tíma.

 

db_logo302
[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Skipurit] [Fundir] [Styrktarsjóður] [Menntasjóður] [Þakkir] [9. apríl] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]