db_logo3

 

BuiltWithNOF
Samtökin

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

 

 

Heimilisofbeldi er mun algengara en flestir gera sér grein fyrir og það ofbeldi sem er þagað um vegna þess að það er litið á það sem einkamál. Engar nákvæmar tölur eru til um fjölda þeirra sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi en algengar tölur eru að milli 14% og 25% íslenskra kvenna séu og hafi verið beittar ofbeldi af núverandi og fyrrverandi maka/sambýlismanni. Í þessar tölur vantar fjölda karla sem búa við sömu aðstæður og barna sem eru þolendur ofbeldis. Yfirleitt er litið mildari augum á ofbeldi sem beinist að fjölskyldumeðlimum, þar sem tekið er tillit til friðhelgi heimilisins. Slík mál flokkast sem einkamál. En heimilisofbeldi á ekki að flokka sem einkamál heldur sem mannréttindabrot!

Stofndagur þessarra samtaka var 9. Apríl 2002.

Tilgangur félagsins er að vera sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur heimilisofbeldis og aðstandendur þeirra og tilgangi sínum hyggst félagið ná með að koma á sambandi milli fólks með reynslu af heimilisofbeldi, opna umræðuna í þjóðfélaginu og gera þolendur sýnilega, veita andlegan stuðning með umræðum og miðla af reynslu félagsmanna.

Félagar samtakan munu vera þeir sem mæta á fundi hverju sinni því engin félagaskrá mun verða gerð.

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Skipurit] [Fundir] [Styrktarsjóður] [Menntasjóður] [Þakkir] [9. apríl] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]