|
Sæl Dísa
Ég ákvað að skrifa þér eftir að ég las sögu þína. Þannig er mál með vexti að þegar ég las sögu þína fannst mer ég vera að lesa mína eigin sögu en þó get þó bætt töluvert við hana
Fyrir 10 árum byrjaði ég með manni sem ég hélt að væri draumur allra minna drauma en eftir að hafa verið með honum í um 6 mánuði þá kom fyrsta reiðarslagið, hann fékk afbrýðissemiskast að ástæðulausu á balli og þegar heim var komið þá fékk ég að finna fyrir því og fékk einn á hann að ástæðulausu ( ég átti að hafa verið að gefa einhverjum undir fótinn ) sem var bull ég þekki marga í gegnum mitt starf og tel að ég hafi fullan rétt á að tala við þann sem að mer þóknast.( Ég var mjög lífsglöð og það skipti mig ekki máli hvort ég tala við Jón eða séra Jón mér finnst allir hafa sama tilverurétt). En þetta var bara byrjunin og asninn ég hélt að þetta væri bara smá skot.
Svona gekk þetta næstu 3 árin eða þangað til ég komst að fyrsta framhjáhaldi hans. (En það hafði verið eitt á undan því sem ég komst að líka.) en þarna fór allt til helv… en hann vildi alltaf og gerði allt í því að halda mer ásamt viðhaldi sinu djöfull (Sorry9… ég tók við honum aftur eftir að hann var búinn að halda framhjá mér í marga mánuði og telja mér jafnframt trú um að viðhaldið væri betra og meira en ég og ég einskisnýt tussa Ég tók við honum aftur eftir þetta allt og hélt áfram í þessu meðvirkni hans.
Sambandið gekk upp og ofan næstu 3 árin ég endalaust nídd niður með orðum eða barsmíði og tekið endalaust á manni kodda troðið yfir andlitið og haldið þar þangað til að maður var að kafna eða kverkatak um hálsinn og hótað að berja nefbein upp í heila því þá dræpist maður um leið. Margar helgar fóru í það að vera aum í öllu andlit og skrokk og í fýlu við hann. En svo kom nýtt viðhald og þessi ræfill gat aldrei annað en logið endalaust og ég tók við honum eina ferðina enn og þegar ég horfi til baka er það vegna þess að sjálfsálit mitt og sjálfsvitund var orðin enginn og ég fór að telja sjálfri mér trú um að ég væri einskisnýt tussa eins og hann sagði og fannst sem tilveruréttur minn væri enginn. Ég gerði allt til að þóknast honum vera fín og sæt barðist I leikfimi til að halda skrokknum I lagi og ég lít mjög vel út af allri þessari baráttu vegna þess að ég hélt að það myndi gera honum til geðs og að hann færi kannski að átta sig en þvílíkt bull.
Eina ferðina enn taldi hann mér trú um að ég fengi ekki betri mann en hann og ég tók við honum aftur ( allir þar á meðal fjölsk mín var löngu búin að sjá I gegnum hann en asninn ég hlustaði á engan) tíminn sem I hönd fór var ekki skárri en sá á undan var en ég fór I Háskóla og það ógnaði veruleika hans þar sem sjálfstraust mitt styrktist og ég fór að standa upp I hárinu á honum.
Ég er búin að komast að því að ég get skrifað heila bók um þetta allt því að þetta er aðeins yfirlit en nú I dag er ég að fara I dómsal eftir 2. vikur vegna þess að ég skildi við hann I sumar og hann fór hamförum , marg braust inn til mín hótaði mér endalaust með sms lífláti og reyndi síðan að framfylgja því.
Ég kærði hann en dró kæruna til baka vegna þrýstings frá fjölsk. hans en ríkissaksóknari ákvað að kæra hann sjálfur. Þess má geta að þessi maður er I ábyrgðarstöðu gagnvart fólki og því ekki starfi sínu hæfur en hann var settur af og allri hans fjölskyldu finnst þetta allt vera mér að kenna og hvorki talar við mig né heilsar. Það er þeirra mál mér leið ekki mjög vel með það fyrst en eftir því sem lengra líður er ég búin að sjá að ég skulda þeim ekkert.
Eftir að ég las grein þína fannst mér það frábært framtak hjá þér að vera með heimasíðu en ég á enn langt I land með að meta sjálfa mig sem persónu sem á fullan rétt á að lifa heilbrigðu og hamingjusömu lífi. Meðvirkni mín er enn sú sama og ég hlakka mjög til þegar ég verð búin að öðlast fullt sjálfstraust. Með kærri kveðju um að þú hafir það gott.
|