|
Þessi viðburður var skipulagður í samstarfi við Blátt áfram og eiga þær systur Svava og Sigga heiður skilið fyrir þeirra starf.

Góður hópur fólks mætti á Arnarhól þann 9. apríl 2005. Tilgangurinn var jú að gefa einstaklingum færi á að rjúfa þögnina um ofbeldismál. Einstaklingum gafst færi á að koma og hengja upp bol fyrir sig eða einhvern sem það þekkir. Margir nýttu sér það og má með sanni segja að þær áletranir sem lesa mátti á bolunum létu engan ósnortinn. Elísabet Jökulsdóttir stjórnaði fyrir okkur tilfinningatorgi í rúmlega klukkutíma og voru margir sem nýttu sér það að tala um eigin reynslu sem og um ofbeldismál almennt. Nokkrir voru að koma fram og tala um reynslu sína í fyrsta sinn og má svo sannarlega óska þeim til hamingju sem og öllum þeim sem tjáðu sig. Sannkallaðar HETJUR það.
Góð umfjöllun var í fjölmiðlum um þessi mál og er það mjög gott þar sem hluti tilgangsins var jú að vekja almenning til umhugsunar um ofbeldi og að þar er vandi sem er raunverulegur og þarf að takast á við. Til þess að takast á við ofbeldi þurfum við að vera tilbúin til að ræða þau af heiðarleika og ábyrgð og rjúfa þögnina sem um þessi mál ríkir.
Gott var að fá stuðning af þeim sem eru að vinna að þessum málum hérlendis en þeir sem studdu okkur eru Stígamót, Samtök um Kvennaathvarf, Kjarkur á Akureyri, Feministafélag Íslands, UNIFEM, Íslandsdeildar Amnesty International og V-dagssamtökin.
Við þökkum öllum stuðninginn!
Hér má sjá umfjöllun í fréttum RUV þann 9. apríl.
Hér má sjá umfjöllun í fréttum Stöðvar 2 þann 9. apríl
Horfa
Auglýsing sem birtist í blöðum

|