db_logo3

 

BuiltWithNOF
Arnarhóll

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Innlent | mbl.is | 9.4.2005 | 11:28

Andóf gegn ofbeldi á Arnarhóli

Samtökin Styrkur – úr hlekkjum til frelsis og verkefnið Blátt áfram standa fyrir andófi gegn ofbeldi með því að hvetja fólk til að hengja upp áletraða boli á Arnarhóli í Reykjavík í dag.

Aðstandendur uppákomunnar segja ofbeldi þrífast í þögninni og nú sé kominn tími til að taka ekki lengur þátt í samsæri þagnarinnar. Þögnin verði rofin á Arnarhóli í dag.

„Við hengjum upp bol fyrir okkur sjálf sem höfum lifað af ofbeldi og ef þú þekkir einhvern sem hefur lifað af ofbeldi getur þú hengt upp boli fyrir hann/hana. Ef þú vilt segja frá einhverju er varðar ofbeldi, lesa ljóð eða stutta sögu, eða bara nafnið þitt til þess að rjúfa þögnina þá verður það í boði. Við styðjum þig í að gera það sem þú þarft til þess að rjúfa þögnina þína,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum framtaksins sem hefst klukkan 14 á Arnarhóli. Framtakið er stutt af Stígamótum, Samtök um Kvennaathvarf, Kjarki á Akureyri, Feministum, Unifem, Íslandsdeildar Amnesty International og fleirum.


Stöð 2 09. apríl 19:00

Þögn ofbeldis rofin á Arnarhóli

Þögnin í kringum ofbeldi var rofin á Arnarhóli í dag þegar fjöldi fólks hengdi upp boli til að sýna í verki að það þyrði að tala um ofbeldi sem það hefði orðið fyrir. 

Það voru samtökin Styrkur, úr hlekkjum til frelsis, og verkefnið Blátt áfram sem skipulögðu athöfnina á Arnarhóli í dag en hún var stutt af Stígamótum, Samtökum um kvennaathvarf, Kjarki, Femínistum, Unifem og Íslandsdeild Amnesty International. Tilgangurinn var að hvetja fórnarlömb ofbeldis til að segja frá ofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir. Og vitnisburður fórnarlamba ofbeldis er hrikalegur eins og sjá mátti á áletrunum bolanna í dag.

Svava Björnsdóttir, verkefnastjóri Blátt áfram, segir að með átakinu sé verið að gefa þeim sem sætt hafi ofbeldi tækifæri til að rjúfa þögnina, sama hvernig mynd ofbeldis sé um að ræða. Hún kveðst vona að þetta muni hætta að vera feimnismál.  

Elfa María Geirsdóttir var ein þeirra sem hengdi upp bol og rauf þögnina. Hún segir þetta hjálpa, m.a. því ofbeldið og fórnarlömbin verði sýnilegri með athöfninni en ekki aðeins prósentutölur. „Ef ég hefði heyrt talað um ofbeldi þegar ég var krakki þá hefði ég kannski uppgötvað, „já, það er verið að tala um mig“, en ég heyrði það aldrei - og vissi því aldrei að þetta væri rangt,“ segir Elfa.  

Horfa


Morgunblaðið Mánudaginn 11. apríl, 2005 - Innlendar fréttir

Rufu samsæri þagnarinnar

Hvetja fólk til að tala um ofbeldi

SAMSÆRI þagnarinnar var rofið á Arnarhóli á laugardag þegar fólk sýndi það í verki að það væri tilbúið að tjá sig um ofbeldi sem það sjálft eða aðrir sem það þekkir til hafa orðið fyrir.

SAMSÆRI þagnarinnar var rofið á Arnarhóli á laugardag þegar fólk sýndi það í verki að það væri tilbúið að tjá sig um ofbeldi sem það sjálft eða aðrir sem það þekkir til hafa orðið fyrir. Hengdir voru upp bolir sem fólk hafði skrifað á skilaboð sem það vildi koma á framfæri.

"Hluti af því að takast á við ofbeldi sem maður hefur sætt er að tala um það. Með þessu vorum við að hvetja fólk til þess. Við getum stöðvað ofbeldi með því að við, sem höfum orðið fyrir ofbeldi, tölum um það," segir Svava Björnsdóttir, verkefnastjóri Blátt áfram, forvarnarverkefnis Ungmennafélags Íslands.

Samtökin Styrkur - úr hlekkjum til frelsis, og verkefnið Blátt áfram skipulögðu framtakið, en það var stutt af Stígamótum, Samtökum um Kvennaathvarf, Kjarki á Akureyri, V-deginum, Femínistafélagi Íslands, UNIFEM á Íslandi, Íslandsdeildar Amnesty International og fleirum. "Við erum alltaf að finna leiðir til þess að vekja athygli á því að ofbeldi er til á Íslandi," segir Svava. Hún segir að um 70 manns hafi komið á Arnarhól og forsvarsmenn uppákomunnar séu mjög ánægðir með hvernig til tókst. Margir hengdu upp boli með einhverju sem þeir höfðu skrifað, svo sem "Ég lifi", skilaboðum til gerenda eða upplýsingum um hve gamall viðkomandi var þegar ofbeldið hófst. Svava segir að það að hengja upp bolina hafi verið táknræn athöfn, á bak við hvern bol er manneskja og fólk sem hafi orðið fyrir ofbeldi hafi þörf fyrir að "viðra út" einhverja innri skömm, ábyrgð eða kenndir sem það hefur gagnvart ofbeldi sem það hefur orðið fyrir.

Nánari upplýsingar má fá á vef Blátt áfram, www.blattafram.is.

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [MBL 2002] [MBL 2003] [Mbl jan.-júl. 2004] [MBL ág.-des. 2004] [MBL 2005] [Fréttablaðið] [Bylgjan] [Stöð 2] [Annað] [Ráðstefnan] [Arnarhóll] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]