db_logo3

 

BuiltWithNOF
Rjúfum þögnina

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Rjúfum þögninga - 9. apríl á Arnarhóli.

 

Rjúfum þögnina á Arnarhóli 9 apríl klukkan 14:00

Við þekkjum of mörg einhvern sem hefur lifað af ofbeldi.  Sum okkar betur en aðrir.

Við bjóðum þér að sýna samstöðu, sýna í verki að við tökum ekki lengur þátt í samsæri þagnarinnar.  Ofbeldi þrífst í þögninni.

 

Komdu á Arnarhól með þinn bol, með eða án texta - við sköffum snúru og klemmur!  Við verðum líka með boli til sölu fyrir 1000 kr ef þið viljið styrkja málstaðinn.

Við hengjum upp bol fyrir okkur sjálf sem höfum lifað af ofbeldi og ef þú þekkir einhvern sem hefur lifað af ofbeldi getur þú hengt upp boli fyrir hann/hana.  Ef þú vilt segja frá einhverju er varðar ofbeldi, lesa ljóð eða stutta sögu, eða bara nafnið þitt til þess að rjúfa þögnina þá verður það í boði.  Við styðjum þig í að gera það sem þú þarft til þess að rjúfa þögnina þína.

Sýnum ábyrg viðbrögð við öllu ofbeldi - Þú átt valið - Okkar val, Rjúfum þögnina!

 

Skipuleggjandi eru samtökin Styrkur – úr hlekkjum til frelsis og verkefnið Blátt áfram.  Framtakið er stutt af Stígamótum, Samtök um Kvennaathvarf, Kjarki á Akureyri, Feministum, Unifem, Íslandsdeildar Amnesty International og fleirum.

 

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Skipurit] [Fundir] [Styrktarsjóður] [Menntasjóður] [Þakkir] [9. apríl] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]