|
Þann 12. apríl 2005 stóðum við fyrir ráðstefnunni Úr hlekkjum til frelsis. Ráðstefnan var haldin í húsnæði Kennaraháskóla Íslands.
Hægt er að sjá fyrirlestrana með því að smella á nafn viðkomandi fyrirlesara á dagskránni neðar á síðunni. Ef þið viljið nálgast glærurnar er hægt að smella hér. Því miður skemmdist upptakan á fyrsta erindinu og aðeins upphafi þess næsta og þykir okkur það mjög leitt.
Hugmyndin að þessari ráðstefnu hafði verið til lengi en ákveðið var að fara af stað í þetta verkefni og nýta það jafnframt sem hluta af vettvangsverkefni hjá Hördísi en hún er einnig nemandi á tómstundabraut í KHÍ. Þar sem vettvangsverkefnið fólst í skipulagningu stórs viðburðar þótti tilvalið að fella þetta saman.
Undirbúningur ráðstefnunnar tók rúmlega 3. mánuði og lögðu margir á sig mikla vinnu við að gera þetta að veruleika og viljum við þakka öllum sem lögðu hönd á plógin með ráðum, vinnu og öðrum styrkjum til að gera þetta að raunveruleika. Án ykkar hefði þetta ekki tekist.
Ráðstefnan tókst mjög vel og fékk góða umfjöllun í fjölmiðlun sem og að efni hennar vakti upp góða og þarfa umræðu um ofbeldismálin í þjóðfélaginu. Undir liðnum fréttir hér til hliðar má sjá umfjöllun þá sem var í dagblöðum landsins.
Hér má sjá umræður um þessi mál í Ísland í bítið þann 11. apríl 2005
Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar
Ráðstefnustýra Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður
- 09.00 – 09.20 Guðrúnu Jónsdóttir félagsráðgjafi “Brot af sögu”
- 09.20 – 10.00 Svava Björnsdóttir
- “Ég valdi mig!” Reynsla af andlegu- líkamlegu- og kynferðisofbeldi.
- 10.00 – 10.20 Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir félagsráðgjafi hjá Barnaverndarnefnd.
- “Verklag hjá Barnavernd Reykjavíkur og aðkoma að ofbeldi gagnvart börnum”
- 10.20 – 10.40 Kaffihlé
- 10.40 – 11.40 Dr. Sigríður Halldórsdóttir Prófessor heilbrigðisdeild – Háskóli Akureyrar
- "Að lenda í hjónabandsháska: Breytt orðræða um heimilisofbeldi"
- 11.40 – 11.55 Umræður
- 11.55 – 13.00 Hádegisverðarhlé ATH. Að í seinnihluta hádegishlés gefst þeim sem áhuga hafa færi á kunnast sýningunni “Krakkarnir í Hverfinu” sem eru brúðuleikþættir um ofbeldi, ætlaðir til fræðslu í skólum.
- 13.00 – 13.20 Drífa Snædal Fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf
- “Börn í kvennaathvarfinu”
- 13.20 – 13.40 Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum
- “Er Ísland griðland fyrir ofbeldismenn?” Um úrræði og úrræðaleysi í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. (ath. umræður eftir þetta erindi eru fyrir framan erindi Eyrúnar)
- 13.40 – 14.00 Eyrún Jónsdóttir hjá Neyðarmóttöku
- “Ungir þolendur á neyðarmóttöku og á slysa- og bráðadeild”
- 14.00 – 14.20 Vigdís Erlendsdóttir forstöðumaður Barnahúss
- “Starfsemi Barnahúss”
- 14.20 – 14.40 Kaffihlé
- 14.40 – 15.00 Svava Björnsdóttir verkefnisstjóri hjá Blátt Áfram
- “Verndarar Barna
- 15.00 – 15.20 Kristján Ingi Kristjánsson rannsóknarlögregla hjá ofbeldisbrotadeild Lögreglunnar í Reykjavík
- “Ofbeldismál tengd netinu”
- 15.20 – 15.50 Umræðu
- 15.50 – 16.00 Ráðstefnuslit
|