db_logo3

 

BuiltWithNOF
Mótlæti

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Hvernig á að taka á mótlæti?

Betri tíð og verri

Þjóðlífsþankar

Mótlæti er ekki vinsælt – og skyldi engan undra. Það kemur og leikur fólk grátt og skilur það svo eftir biturt og beiskt.  Í besta falli sleppur það með skrekkinn.  Það er því ekki að ófyrirsynju að menn hafa reynt að grynna á þessu fyrirbæri, skilgreina það og finna ráð til þess að yfirvinna það. Þeir allra hörðustu hafa meira að segja fundið marvísleg ráð til að græða á því á ýmsan hátt.  Selt sögu sína í fjölmiðla, búið til minjagripu ef mótlætið leyfir slíkt, stofnað félög til þess m.a. að hafa selskap af þeim sem eins er ástatt um – sem sagt snúið vörn í sókn.  Eitt er víst að allir lenda fyrr eða síðar í einhvers konar mótlæti. Hvað er svo mótlæti? Það er eitthvað sem hendir fólk og veldur því sorg, kvíða, erfiði, sársauka og armmæðu. Hvað flokkast undir mótlæti er hins vegar miklu teygjanlegra.  Það sem einum finnst hræðilegt er öðrum kærkomin áskorun. Að missa vinnuna er t.d. mótlæti fyrir einn en vekur annan til dáða.  Sumir bera ekki sitt barr eftir hjónaskilnað meðan aðrir verða að nýju og betra fólki. Veikindi gera suma að beiskum einstæðingum en gefa öðrum tilefni til að byrja betra og innihaldsríkara líf.  Að missa elskaðan ástvin má hins vegar ætla að sé öllum mikið áfall, en kannski mismikið eftir persónugerð þess sem fyrir verður. Mótlæti getur gert hvort heldur sem er, bugað fólk eða hert það.

Eftir að hafa talað við mikinn fjölda fólks um ævi þess og ýmiss konar lífsreynslu, finnst mér allt bera að sama brunni.  Það skiptir ekki megin máli hvaða mótlæti hendir fólk.  Það skiptir megin máli hvernig það tekur mótlætinu.  Fólk getur nefnilega stundum ekki nema að litlu leyti ráðið hvað kemur fyrir það.  En það getur hins vegar oft ráðið hvernig það bregst við því sem hendir. Þegar grannt er skoðað eru til ýmis ráð sem reynst hafa vel í mótlæti og stuðla að því að fólk sleppur fremur fyrir horn með skrekkinn.

Það er einkum tvennt sem gott er að huga að þegar mótlæti ber að dyrum.  Að reyna að halda í dómgreindina og nota hana síðan til þess að taka þá ákvörðun sem sýnist hafa gæfulegustu afleiðingarnar þegar til lengri tíma er litið. Vitað er að dómgreindinni hættir til að brenglast þegar fólk verður fyrir snöggum áföllum.  Þess vegna er heppilegt að fresta eftir föngum meiri háttar ákvörðunum eftir slíka atburði og leika í staðinn þá biðleiki sem unnt er stöðunnar vegna.  Þegar að því kemur að taka ákvörðun þá er um að gera að reyna að skoða málin frá sem flestum sjónarhornum áður en nokkru er slegið á föstu. Það er t.d. ákaflega óráðlegt að ákveða snögglega eftir missi ástvinar eða annan missi að selja eignir, flytja af landi brott, skipta um vinnu eða slíta sambandi við fólk. Slíkar ákvarðanir á ekki að taka í fljótheitum nema knýjandi nauðsyn beri til. Heppilegra er að leyfa málunum aðeins að þróast áður en nokkuð er gert sem snertir þann grundvöll sem viðkomandi byggir tilveru sína á.  Hvað smærri atriði áhrærir s.s. útlit og daglega lífshætti, þá er góð regla í mótlæti að reyna að leggja talsvert upp úr útliti sínu og gera sér tilveruna eins skemmtilega og unnt er. Það skerpir jákvæða sjálfsímynd að vita sig líta vel út. Þess vegna er ráðlegt að snyrta sig og klæða eins vel og unnt er meðan áfallið er að ganga yfir – nóg er samt.  Ef fólk er hamingjusamt getur það hins vegar leyft sér að ganga um eins og “reittar hænur.”  Það er auðvitað ekki neitt sem stefna ber að en það gerir hins vegar ekkert til. Sjálfsímyndin ber engan skaða af slíku ef það sem máli skiptir er í lagi.

Tilveru sína má gera skemmtilega með ýmsu móti þótt fólk sé í grundvallaratriðum óhamingjusamt. Sé ástandið þannig er um að gera að grípa til allra þeirra flóttaleiða sem tiltækar eru og skaða ekki.  Svo sem að sjá skemmtilega bíómyndir, lesa skemmtilegar bækur, hitta skemmtilegt fólk, borða góðan mat og stunda heilsurækt. Ekkert af þessu hjálpar í sjálfu sér en það það hefur ofan af fyrir fólki og það vinnur tíma til þess að ákveða hvað þurfi að breytast til þess að grundvallaratriðin verði í lagi. Sé fólk hins vegar hamingjusamt þarf það ekki á neinu þessu að halda. Því líður vel innra með sér og getur þar af leiðandi bara dundað sér við eitt og annað – og það er jú það ástand sem flestum þykir eftirsóknarvert. Síðast en ekki síst er gott að hafa í huga að mótlæti er sjaldnast viðvarandi.  Mótlæti er yfirleitt tímabundið ástand sem gengur fyrr eða síðar yfir – í versta falli venst það. Mikilsvert er að hafa þetta í huga.  Muna að það þarf að þrauka erfiðu stundirnar til þess að geta skemmt sér þegar kemur “betri tíð með blóm í haga”.  Betri tíðin kemur svo smám saman og verður því betri sem ákvarðanirnar að baki henni eru djúphugsaðri.  Loks er svo áríðandi að skemma ekki “betri tíð með blóm í haga” með því að sökkva sér ofan í kvíða fyrir því sem koma skal.  Fólk á ekki að neita sér um að gleðjast af því að einhvern tíma komi að skuldardögum. Áföllin koma eins fyrir það þótt fólk eyði góðum dögum í sorg og sút og verða alveg eins þung – ef ekki þyngri. Ef vel tekst til í aðgerðunum gegn mótlætinu þá kemur fólk út úr því sterkara en áður og mun betur vopnum búið til þess að heyja áframhaldandi báráttu.

MBL. 30. nóvember 1997

 

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Mikilvæg persóna] [Ofbeldi] [Rannsókn] [Eflandi eda nidurbrjotandi] [Veggurinn er vitnið] [Ofbeldi í samböndum] [Að ráða lífi og dauða] [Togstreita] [Ofbeldi gegn konum] [Ofbeldi gegn börnum] [Af hverju ofbeldissamband?] [Ummerkjalaust ofbeldi] [Kona hávaxin] [Samskipti] [Opin tjáskipti] [Mótlæti] [Claudia Black] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]