db_logo3

 

BuiltWithNOF
Menntasjóður

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

Gjafabréf

Stofnframlag til stofnunar Símenntunarsjóðs Styrks – úr hlekkjum til frelsis

– þrjátíu og tvöþúsund krónur –

Megintilgangur

  • Megintilgangur símenntunarsjóðsins er að greiða fyrir menntun fólks sem hefur orðið fyrir heimilisofbeldi með fjárstuðningi og gera því kleift að sækja hagnýt námskeið að eigin vali sem þó eru viðurkennd af stéttarfélögum eða opinberum aðilum.
  • Varsla, ráðstöfun og uppgjör
    • Varsla símenntunarsjóðs Styrks er í höndum stjórnar Styrks og skal minnst einn stjórnarmaður kosinn af sitjandi stjórn bera ábyrgð á fjárreiðum hans. Ráðstöfun fés úr sjóðnum skal þó ávallt vera sameiginleg ákvörðun stjórnar hverju sinni. Aldrei má ganga á stofnfé sjóðsins nema endurgreiðsla sé tryggð. Uppgjör og endurskoðun reikninga sjóðsins fari fram um leið og endurskoðun reikninga Styrks.
  • Efling sjóðsins
    • Tekjur sjóðsins eru frjáls framlög og er eingöngu leyft að ráðstafa þeim til menntunar fólks sem stjórn hans ákveður að styrkja til náms hvort sem það nám er til lengri eða skemmri tíma enda sé markmiða sjóðsins gætt í sífellu. Það skal haft að leiðarljósi, að öllu öðru jöfnu, að námið sem styrkt er hverju sinni sé umsækjandanum hagnýtt eða honum til framdráttar. Óheimilt er að fórna meginreglum sjóðsins fyrir önnur markmið við úthlutun úr honum.
  • Úthlutunarreglur
    • Atvinnulausir umsækjendur og umsækjendur utan stéttarfélaga hafa að öðru jöfnu rétt á hærri styrkjum úr sjóðnum eða sem nemur almennum endurgreiðslurétti fólks í stéttarfélagi VR hið minnsta enda hafi þeir ekki rétt á þeim greiðslum frá stéttarfélagi né atvinnutryggingarsjóði. Skilyrði er að viðkomandi umsækjandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur og sæki þau námskeið sem eru þar í boði auk þess náms sem sótt er um styrk fyrir. Stjórnin setur nánari úthlutunarreglur símenntunarsjóðsins.
  • Reglubreytingar
    • Óheimilt er að breyta megintilgangi sjóðsins eða gera nokkuð það sem takmarkar aðgang almennings að sjóðnum sbr. meginreglu. Heimilt er að breyta rekstrar-fyrirkomulagi sjóðsins til sjálfstæðis en rekstur hans má þó aldrei verða dýrari en vaxtatekjur af framlögum undanfarins árs. Sé rekstur hans dýrari fellur sá rekstrarkostnaður sem er umfram vaxtatekjur undanfarins árs á félagið Styrk – úr hlekkjum til frelsis.
  • Ofanrituðu til staðfestingar
    • Reykjavík, í ágústmánuði 2002
  • (sign)
  •  

    db_logo302
    [Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Skipurit] [Fundir] [Styrktarsjóður] [Menntasjóður] [Þakkir] [9. apríl] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]