|
Hversu vel verstu streitu?
Merktu við hvern lið með 1 (nær alltaf) til 5 (aldrei) eftir því hve vel hver fullyrðing á við þig.
___ 1. Ég borða minnst eina heita, vel samsetta máltíð á dag.
___ 2. Ég næ að sofa 7-8 klst. að minnsta kosti 4 nætur í viku.
___ 3. Ég gef og þigg ástúð/hlýju í daglegu lífi mínu.
___ 4. Ég á að minnsta kosti einn ættingja sem ég get reitt mig á, innan 85 km fjarlægðar.
___ 5. Ég reyni á mig (þjálfa mig) svo að ég svitna, að minnsta kosti tvisvar í viku.
___ 6. Ég reyki minna en ½ pakka af sígarettum á dag.
___ 7. Ég drekk færri en 5 áfenga drykki á viku (1drykkur = sjúss/bjór/vínglas).
___ 8. Ég er hæfilega þung/ur miðað við hæð.
___ 9. Ég hef tekjur sem nægja fyrir lífsnauðsynjum.
___10. Ég fæ styrk frá trúarhugmyndum (hugsjónum) mínum.
___11. Ég tek reglulega þátt í félagsstarfi (sæki fundi eða tel mig virkan þátttakanda).
___12. Ég á allmarga vini og kunningja.
___13. Ég á trúnaðarvin/I sem ég get treyst fyrir persónulegum málum.
___14. Ég er við góða heilsu (meðtalin augu, eyru, tennur).
___15. Ég get rætt opinskátt um tilfinningar mínar sé ég reiður eða áhyggjufullur.
___16. Ég tala reglulega við fólkið, sem ég bý með um heimilis(vanda)mál s.s. húsverk, peningamál og mál sem koma upp í daglega lífinu.
___17. Ég geri eitthvað mér til ánægju minnst vikulega.
___18. Ég get skipulagt tíma minn vel.
___19. Ég drekk innan við 3 bolla af kaffi (tei/kóladrykkjum) á dag.
___20. Ég tek mér rólega hvíldarstund yfir daginn.
___ Samtals.
Leggðu saman tölurnar og dragðu 20 frá útkomunni. Tala yfir 30 merkir að þú verst illa streitu. Þú ert mjög illa varin/n ef talan er 50-70 og í afleitri stöðu ef hún er hærri en 75.
Útbúið af sálfræðingunum Lyle H. Miller og Ölmu Dell Smith, Bostonháskóla.
|