|
Hlutverk í fjölskyldum.
Ábyrga barnið:
Oft elsta barnið.
Er þægt og gerir fólki til geðs.
Meðvitað um þarfir og kröfur umhverfisins.
Finnst það einhvers virði þegar það er að hjálpa öðrum – verður snemma “litli ráðgjafinn”.
Duglegt í skóla, íþróttum o.fl. – með fullkomnunaráráttu.
Giftist oft einstaklingi sem þarfnast hjálpar.
Syndaselurinn / blóraböggullinn:
Nær athygli með neikvæðri hegðun.
Fær snemma “taparaímynd”.
Getur engum treyst.
Ögrar umhverfinu.
Gengur illa í skóla.
Dregst að öðrum syndasel / blóraböggli.
Týnda eða gleymda barnið:
“Miðjubarnseinkenni”.
Felur sig og tilfinningar sínar.
Er mikið eitt.
Á erfitt með að eignast vini.
Vekur enga athygli í skóla – erfiðleikar þess finnast því oft seint.
Lítið sjálfstraust.
Á erfitt með að taka ákvarðanir.
Trúðurinn / gæludýrið:
Nær athygli með því að vera fyndið.
Er oft litla barnið sem er ofverndað.
Er oft truflandi – á marga kunningja en fáa vini.
Tekur hlutina ekki alvarlega og er ábyrgðarlaust.
Flóttamaðurinn:
Flóttamaðurinn getur verið syndaselur, týnda barnið eða trúðurinn.
Tekur ekki á sig ábyrgð.
Forðast fólk og erfiðar aðstæður.
Er í felum.
Lætur sig hverfa þegar “eitthvað er í aðsigi”.
|