db_logo3

 

BuiltWithNOF
Hagnýt ráð

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Hagnýt ráð til kvenna/stúlkna sem eru beittar ofbeldi

 

  • Haltu dagbók
  • Skráðu hvert skipti sem hann leggur á þig hendur, ógnar eða hótar þér. Þá átt þú auðveldara með að rifja upp það sem hefur gerst.
  • Geymdu sönnunargögn
  • Geymdu SMS-skilaboð með hótunum, netpóst og fleira sem gætu hugsanlega gagnast þér þegar og ef þú ákveður að kæra ofbeldið.
  • Segðu einhverjum frá
  • Segðu einhverjum sem þú treystir frá ofbeldinu. Það getur verið vinkona, kennari, ættingi, kunningi eða vinnufélagi. Þó að þú treystir þér ekki til að gera neitt í aðstæðunum einmitt í augnablikinu,  þá er einhver sem veit hvað hefur gerst.
  • Skrásettu áverkana
  • Skráðu og reyndu að taka sjálf myndir af áverkunum. Við komu til læknis eða á neyðarmóttöku skaltu fara fram á að teknar séu myndir af áverkunum. Jafnvel þó að þú treystir þér ekki til að gera neitt í málinu í augnablikinu þá eru þessi gögn til staðar þegar og ef þú ákveður að leggja fram kæru hjá löglreglunni.
  • Leggðu ekki trúnað á að þetta gerist aldrei aftur
  • Undirbúðu flóttaleiðir þannig að þú getir farið hvenær sem er sólahringsins, t.d. í Kvennaathvarfið, til vinkonu eða ættingja. Þú gætir beðið einhverja sem standa nálægt þér um lykil að húsnæði þeirra þannig að þú hafir alltaf einhvern stað til að fara á.
  • Hringdu / sendu tölvupóst til Kvennaathvarfsins
  • Kvennaathvarfið er opið allan sólarhringinn. Þangað getur þú hringt eða komið og sótt stuðning í algerum trúnaði. Þú getur fengið viðtöl þér að kostnaðarlausu, símanúmerið er 561-1205.
  • Netfangið er kvennaathvarf@kvennaathvarf.is og heimasíðan: www.kvennaathvarf.is.
  • Kærðu til lögreglu /gefðu skýrslu
  • Gerðu manninum ljóst að þú samþykkir ekki brot hans gegn þér. Ofbeldi karla og drengja gegn konum og stúlkum er lögbrot. Það er áríðandi að kæra ofbeldismanninn, bæði þín vegna og til þess að eiginmaður þinn eða kærasti skilji að það er glæpur sem hann er að fremja gegn þér.
  • Konur og stúlkur sem hafa lifað eða lifa við ofbeldi (andlegt /líkamlegt) hafa gert grein fyrir sameiginlegri upplifun á hegðunarferli ofbeldismanna í samböndunum. Hér á eftir eru talin upp nokkur atriði sem eru vísbendingar (merki) um að eitthvað er ekki í lagi.
  • Taktu eftir skoðunum hans á kvenfólki
  • Hlustaðu eftir hvernig maðurinn/drengurinn talar um konur/stelpur almennt, hvernig þær klæða sig , hvernig hann metur konur/stelpur, hvernig hann metur kvenkyns vinnufélaga/skólafélaga og taktu eftir framkomu hans við konur og stelpur almennt.
  • Vertu vakandi gagnvart afbrýðissemi
  • Karlar og drengir sem sýna óhóflega afbrýðissemi hafa mikla stjórnunarþörf. Vertu sérstaklega á varðbergi ef hann gerir þig ábyrga fyrir sínar eigin tilfinningar eða  þú upplifir þig nauðbeygða  til að hætta við að fara í gleðskap eins og vinnuteiti, stelpnapartí, skólaskemmtanir o.þ.h. eingöngu vegna viðhorfa hans. Þá eru það hans þarfir sem stjórna þinni hegðun og þú einangrast frá öðrum.
  • Gengur berserksgang og eyðuleggur hluti
  • Karlinn/ drengurinn sem fær “æðiskast” brýtur og eyðileggur hluti, þína hluti. Kannski kastar hann  leirtaui eða sparkar upp hurðum. Þetta eru ofbeldisverk framin með því markmiði að hræða.
  • Einangrun
  • Þegar kemur að einangruninni er hægt að greina ákveðið mynstur í atferli mannsins/drengsins, til dæmis keyrir hann þig í vinnuna/skólann og sækir. Þú mátt kannski vinna en helst ekki fulla vinnu. Þú átt að eyða tíma þínum í hann. Hann leyfir þér ekki að fara í vinnustaðateiti/skólaskemmtanir eða hitta vini fyrir utan vinnu eða skóla, og kemur jafnvel  í veg fyrir að þú umgangist fjölskyldu þína. Þú missir oft tengsl við vinkonur þínar þar sem hann vill ekki að þú hafir samband við þær. Hann bannar þér sjaldnast beint en sýnir vilja sinn með “fýlu” og tilfinningakulda.
  • Algjör stjórnun
  • Í fyrstu gengur allt út á það að hann tekur ákvarðanir undir öllum kringumstæðum.  Jafnvel það sem varðar þitt eigið líf. Hann ákveður hvað þið gerið og um hvað þið talið. Eftir smá tíma færð þú vart að hugsa sjálfstætt og að lokum nær stjórnun hans yfir allt sem þú hugsar, skoðanir þínar og gerðir. Þitt persónulega rými minnkar.

Þýtt og staðfært af upplýsingasíðu sænsku kvennaathvarfasamtakanna Roks   http://www.roks.se

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Fyrir þig sem býrð við ofbeldi] [Hagnýt ráð] [12 atriði] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]