|
Um vináttuna.
Ef vinkona þín á í erfiðleikum er ekki nóg að bjóðast til þess að hjálpa henni. Farðu til hennar, gættu barnanna, sláðu blettinn og settu í þvottavélina. Ef þú býðst til að taka að þér ákveðin verkefni er ekki ólíklegt að hún taki boðinu og veðri þér að eilífu þakklát.
Vinur veit hvenær er við hæfi að tala, hvenær er við hæfi að hlusta og hvenær er best að koma í heimsókn með tvær skeiðar og einn lítra af rjómaís.
Berðu nóga virðingu fyrir vinum þínum til þess að móðast ekki þótt þeir taki ekki mark á skoðunum þínum og fari ekki eftir ráðleggingum þínum.
Vinir þurfa ekki endilega alltaf að vera á sama máli. Gættu þess samt að enda aldrei orðaskipti ykkar með því að hóta því að slíta vinskiptunum.
Leyfðu vini þínum aldrei að stökkva út úr flugvél án þess að hann hafi fallhlíf á bakinu. Hvorki í eiginlegri né óeiginlegri merkingu.
Haltu upp á sæta sigra og deildu góðum fréttum með vinum þínum. Hvort sem um er að ræða afmæli, stöðuhækkun eða þá staðreynd að sonur þinn slapp við að fara í skammarkrókinn þessa vikuna.
Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu.
Við getum lært ýmislegt um vináttuna með því að fylgjast með litlum börnum. T.d. að hlæja eins oft og við getum, klúðra hlutunum í sameiningu án þess að taka það allt of alvarlega, lána hvert öðru eigur okkar og bera aldrei út slúður.
Hringdu í gamlan vin sem þú hefur misst sambandið við. Það er öruggt að það mun gleðja hann.
Sagt er að demantar séu besti vinir konunnar. Það er alls ekki rétt. Góðir vinir eru bestu demantar konunnar. Þeir glitra og skína og eru tærir og ekta.
Við þurfum ekki að eyða háum upphæðum í gjafir vegna þess að vináttan er besta gjöfin.
Vináttu er hægt að lýsa með þessum orðum. Væntumþykja, Innileiki, Nærvera, Ást, Traust, Trúnaður, Artasemi
|