|
Gullkorn eru alltaf góð til að minna okkur á.
Þau segja okkur svo mikið í fáum orðum.
Gullkorn hjálpuðu mér mjög mikið að byggja sjálfa mig upp. Ég las einhver gullkorn daglega. Gullkorn eins og þau sem eru hér eru þau gullkorn sem hjálpuðu mér einna mest. Í fyrstu las ég þau og gat alls ekki trúað að þetta væri eitthvað sem ætti við mig eða ég gæti farið eftir. En sum þeirra skrifaði ég upp og setti þar sem ég sá þau og las á hverjum degi. Smátt og smátt fór ég að hugsa og haga mér í samræmi við þau.
Því ákvað ég að setja þessi gullkorn hér í þeirri trú að þau geti hjálpað ykkur.
Ef þið eigið góð gullkorn í fórum ykkar hvet ég ykkur til að senda þau til okkar. Tölvunetfangið er styrkurinn@simnet.is.
Kærar þakkir
Hjördís Guðlaugsdóttir
|