|
Gefðu þér tíma
Gefðu þér tíma til að hugsa – hugsanir eru orkulind.
Gefðu þér tíma til að leika – leikur er leyndardómur að eilífri æsku.
Gefðu þér tíma til að lesa – lestur er uppspretta visku.
Gefðu þér tíma til að biðjast fyrir – bænin er klettur í ölduróti.
Gefðu þér tíma til að elska – ástin gefur lífinu gildi.
Gefðu þér tíma til að eignast vini – vinskapur kryddar lífið og gefur því lit.
Gefðu þér tíma til að hlægja – hláturinn er tónlist sálarinnar.
Gefðu þér tíma til að gefa – hver dagur er of stuttur fyrir eigingirni.
Gefðu þér tíma við að vinna af alúð – vel unnin verk, hver sem þau eru, næra sjálfstraustið og andann.
Gefðu þér tíma við að sýna þakklæti – þakkir eru kremið.
|