db_logo3

 

BuiltWithNOF
Fyrir þig sem býrð við ofbeldi

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Mikilvæg öryggisatriði

(Hart & Stuehling, 1992)

 

Einkenni yfirvofandi ofbeldis:

** Aðstæður skapast sem vitað er að leiða sennilega til ofbeldis.

** Áttir þig sem best á því hvenær og hvar mesta hættan er á ofbeldinu.

** Áttir þig á aðdraganda ofbeldisins s.s. spennu sem hleðst upp og/eða önnur einkenni sem þú þekkir og veist af reynslunni að leiða líklega til ofbeldis.

Gera áætlun um mögulegar flóttaleiðir:

** Hvernig kemstu öruggast og fljótast út?

** Hvaða dyr, glugga, stiga, lyftu er best að nota?

** Hvar er hægt að leita skjóls á degi og að nóttu til?

Dæmi um það sem þarf að vera tilbúið til að taka með í skyndi:

** Húslykla/bíllykla.

** Nauðsynleg föt og snyrtidót.

** Lyf sem ekki er hægt að vera án.

** Peninga/smámynt í síma.

** Greiðslukort/bankabók/ávísanahefti.

** Persónuskilríki/ökuskírteini – aðra mikilvæga pappíra.

** Kæra persónulega muni – muna eftir einhverju sem börnunum er kær.

** Skóladót barnanna.

Neyðarstuðningur annarra:

** Hvað vita vinir/nágrannar? Eiga þeir að koma og aðstoða ef t.d. hávaði heyrist frá íbúðinni? Eiga þeir að hringja á lögreglu?

** Geta börnin hringt í neyðarnúmer, sé þess þörf?

** Þarftu að upplýsa börnin um hvernig eigi að leita aðstoðar og hvenær?

** Er e.t.v. nauðsynlegt að hafa eitthvert “leyniorð” þannig að börnin viti að þau eigi að leita hjálpar þegar þú segir orðið?

** Hvað ætlar þú að segja lögreglunni eða öðrum hjálparaðilum þegar þeir koma á staðinn?

Að þekkja stuðningsleiðirnar:

** Skrá neyðarnúmerið á áberandi stað. Gott er að æfa hvaða upplýsingar á að veita til að hjálpin komi skjótt og örugglega.

** Ef þú leitar annað hvert ferðu, hvernig kemstu og er vitað að e.t.v. má eiga von á þér hvenær sem er?

 

**** Allir eiga rétt á að lifa ofbeldislausu lífi – einnig þú!!

**** Ofbeldi er alltaf á ábyrgð þess sem beitir því.

**** Áhrif og afleiðingar ofbeldis á börnin geta verið alvarlegar og alveg eins þó þau verði ekki sjálf fyrir beinu ofbeldi.

**** Ýmsar stuðningsleiðir eru til. Ein leiðin er stuðningur Kvennaathvarfsins, þar er opið allan sólarhringinn. Síminn er 561 1205.

 

(Assessing Woman Battering in Mental Health Services, 1998. Edward W. Gondolf

ISBN 0-7619-1107-3)

Vilborg G. Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur tók saman og þýddi 1998.

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Fyrir þig sem býrð við ofbeldi] [Hagnýt ráð] [12 atriði] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]