db_logo3

 

BuiltWithNOF
Frá vinkonu

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Hugleiðing frá vinkonu!

Ég fór að velta fyrir mér þeim hugmyndum sem að við höfum um sambönd og tilgang þeirra, væntingar okkar til makans og vonir sem við bindum við framtíðina.

Ég velti því fyrir mér hvort að við lítum ekki flest ef ekki öll á fjölskylduna sem grunneiningu þjóðfélagsins.

Ef að þessi mikilvægi hornsteinn samfélagsins er ekki samheldin og heilbrigður, þá er þjóðfélagið ekki heilbrigt né samheldið, því að mínu viti er þjóðfélagið byggt á fjölskyldum og fjölskyldur byggðar á þjóðfélaginu.

Hlýhugur og ástúð á að vera grundvöllur samfélagsins, það er krafa okkar allra en samt gengur okkur misjafnlega að fylgja því gangvart einstaklingum sem eru í kringum okkur. Hjónaband eða samband tveggja einstaklinga þarf að byggjast á gagnkvæmu trausti og virðingu beggja. Fólk sem ætlar sér að búa saman þarf að gera það í sátt og samlyndi, þannig að báðum komi til með að líða vel í sambandinu.

Það er réttur hverrar manneskju að fyrir henni sé borin virðing og að komið sé fram við hana á jafnréttisgrundvelli.

Samskiptin eiga að bera merki vellíðunar og sáluhjálpar, en ekki niðurbrots og vanlíðan. Ég tel að samband sé ekki bara samvera og ást, heldur einnig virðing og loforð um að hlúa að hvort öðru andlega og líkamlega.

Ekkert okkar reiknar því með að verða vansælt í sambandi, óhamingjusamt hvað þá að verða fyrir ofbeldi af hendi einhvers sem að maður elskar.

Við gerum okkur oft grein fyrir því að það geti komið tímabil í sambandi tveggja einstaklinga þar sem að viðkomandi eru vansæl, jafnvel óhamingjusöm en lítum á það sem áskorun, sem eitthvað sem tilheyrir og hægt er að kippa í liðinn ef báðar aðilar takasaman á orsökinni.

En að verða fyrir ofbeldi af hendi einhvers sem að maður elskar reiknar maður ekki með.

Að mörgu þarf því að hyggja þegar lagt er upp í sambúð, því við megum ekki taka öllu sem sjálfsögðum hlut.

Við þurfum að hlú að sambandinu, rækta það, sýna hinum aðilanum að hann sé sérstakur. Við megum og getum ekki komið fram við aðra manneskju þannig að henni fari að líða illa, það á enginn það skilið.

Ef við getum ekki borið virðingu fyrir hinum aðilanum eða að við sjáum að honum líður illa í sambandinu er kominn tími á að hugsa til baka, kominn tími á að hugsa hvað sé að gerast og hvort þetta sé sambandið sem maður óskaði sér.

Bara það eitt að öðlast hamingju getur verið strembið,og það er sama hversu mikið maður leggur á sig það veit engin hversu lengi hún endist.

Ég legg mína drauma í þínar hendur. Því saman göngum við fram veginn. Með þér finnst mér eins og sólin komi upp á ný - sumarið fæðist, bara fyrir okkur tvö!

[Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Ábyrgðin] [Hópastarf] [Opinberunin] [Frá vinkonu] [Ástin] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]