db_logo3

 

BuiltWithNOF
Einkenni meðvirkni

Síðan var síðast uppfærð í október 2007 og er mikið af nýju efni á síðunni. Meðal annars greinar, góð ráð, ráð fyrir þá einstaklinga sem búa við ofbeldi, ráð fyrir aðstandendur, gullkorn, ljóð og margt fleira.  Nýjustu reynslusögurnar eru númer 20 og 21.

db_logo302

Sérkenni meðvirkar persónu í samskiptum við aðra

 

  • 1. Dæmigert er að þú komir frá heimili í upplausn, þar sem tilfinningalegum þörfum þínum var ekki fullnægt.
  • 2. Þar sem þú nýtur lítillar ástúðar reynir þú að fullnægja ómættum þörfum frá öðrum með því að verða forsjárpersóna, einkum karla/kvenna sem á einhvern hátt hafa þörf fyrir slíkt.
  • 3. Þar sem þér tókst aldrei að breyta foreldri(um) þínu(m) í þær ástúðlegu forsjárpersónur sem þú þrárðir, hefurðu mikla samhygð með körlum/konum sem eru álíka á sig komin tilfinningalega. Þú reynir aftur að hafa áhrif á með ástúð þinni.
  • 4. Full(ur) ótta við að verða yfirgefin(n) reynirðu allt til að hindra slit kynna.
  • 5. Næstum ekkert er of erfitt, tekur of langan tíma eða er of dýrkeypt ef það aðeins “hjálpar”þeim karli/konu sem þú ert viðriðin.
  • 6. Vön/vanur ástleysi í persónulegum samskiptum, ertu reiðubúin(n) til að bíða, vona og leggja enn meira á þig til að geðjast öðrum.
  • 7. Þú ert tilbúin(n) að axla miklu meira en helming ábyrgðar, sektarkenndar og ámæla í hvaða samskiptum sem er.
  • 8. Sjálfsvirðing þín er hættulega lítil og innst inni trúir þú því ekki, að þú eigir skilið að njóta nokkurrar gleði. Þú álítur frekar að þú þurfir að ávinna þér rétt til að njóta lífsins.
  • 9. Þú hefur sára þörf fyrir að stjórna samskiptum þínum við aðra eftir að hafa notið lítils öryggis í æsku. Þú felur tilraunir þínar til að hafa stjórn á fólki og atburðarás undir því yfirskini að “vera hjálpleg(ur)”.
  • 10. Öll samskipti þín við aðra mótast miklu frekar af óskhyggju um hvernig þau ættu að vera en raunveruleikanum.
  • 11. Þú ert ofurseld(ur) samskiptum við aðra og tilfinningakvölum þjáninganna.
  • 12. Þú getur verið líffræðilega og tilfinningalega móttækileg(ur) fyrir misnotkun eiturlyfja, áfengis og / eða sumra fæðutegunda, oftast þeim sykruðu.
  • 13. Með því að laðast að fólki með vandamál, sem þarfnast lagfæringar, eða með því að flækjast í viðburðarás þar sem allt er á ringulreið, óvissu og tilfinningalegri kvöl, nærðu aldrei að einbeita þér að þeirri ábyrgð, sem þú berð á sjálfum(ri) þér.
  • 14. Þú getur haft tilhneigingu til þunglyndiskasta, sem þú reynir að koma í veg fyrir með þeirri spennu sem ótrygg samskipti byggjast á.
  • 15. Þú laðast ekki að góðviljuðu og áreiðanlegu fólki sem sýnir þér áhuga. Þér finnst slíkt “indælis-fólk leiðinlegt”.
  •  

    [Styrkur] [Upphafið] [Reynslusögur] [Greinar] [Ef þú býrð við ofbeldi] [Góð ráð] [Gefðu þér] [Stattu með þér] [Til að setja á spegilinn] [Leiðir til sjálfsumönnunnar] [Um kvíða] [Að minnka kvíða] [Einkenni meðvirkni] [Að forðast meðvirkni] [Hlutverk í fjölskyldum] [Dæmi um hlutverk] [Mannrækt] [Matarfíkn] [Einkenni áfallastreitu] [Álagsstreita] [Streita] [Streitulosun] [Skýr tjáskipti] [Vandamál] [Vinsamleg tilmæli] [Þunglyndi] [Ýmislegt um streitu] [Ýmis ráð] [Setja mörk] [Sjálfstyrking] [Spurningalistar] [Aðstandendur] [Hugleiðingar] [Samtökin] [Viðburðir] [Fréttir] [Rásarspjall] [Ljóð] [Gullkorn] [Tenglar] [Gestabók]