|
Ég bíð hér og hef beðið lengi
ég vakna við allar rangar ákvarðanir
og það sem nagar innan frá
birtist sem neisti í augum mér
því ég nærist á óöryggi
viltu giska á nafn mitt?
Ég styrkist með tíma og streytu
ég neita þér um alt það sem þú girnist
og eina leiðin til að kæfa mig er
að stinga mig á hol
með þjósku og nákvæmni
blæða út
viltu giska á nafn mitt?........
|