|
Bylgjan 15. janúar 13:45
Úrræði vegna heimilisofbeldis fá
Úrræði vegna heimilisofbeldis eru af skornum skammti úti á landi samanborið við höfuðborgarsvæðið. Á þetta bendir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður í tengslum við fréttir Stöðvar 2 um að nálgunarbann, sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu í Vestmannaeyjum, hafði lítið að segja.
Sif sagði í þjóðmálaþættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöld að konur sem sæti ofbeldi af hendi maka eigi að hafa lögmann með sér þegar þær kæra til lögreglu. Auk þess geta þær leitað til Stígamóta, Kvennaathvarfsins og sérfræðinga á neyðarmóttöku spítalanna en þetta er allt í Reykjavík.
Hlusta
Bylgjan 27. nóvember 15:00
Fórnarlömb ofbeldis á tískusýningu
Núna klukkan þrjú koma konur með áverka eftir árásir fram á tískusýningu í Lækjargötu. Sýningin er á vegum Amnesty International á Íslandi og er liður í átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Ýmsar þekktar konur koma fram á sýningunni, farðaðar eftir áverkalýsingum úr dómsmálum og verður lesið upp úr málunum á meðan. Tónlistin verður í anda málefnisins, hljóð sem þolendur heimilisofbeldis þekkja vel: sírenur, högg og brothljóð. Sýningin er í Iðu í Lækjargötu.
Bylgjan 11. nóvember 16:17
Sérstök lög um heimilisofbeldi
Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingslályktunartillögu um að sett verði sérstök lög um heimilisofbeldi. Heimilisofbeldi er ekki skilgreint sérstaklega í íslenskri löggjöf, heldur helst dæmt eftir hegningarlögum um líkamsárásir. Ágúst segir það ekki nóg; heimilisofbeldi geti verið mjög alvarlegt án mikilla líkamlegra afleiðinga og þá getur legið talsvert lægri refsing.
Bylgjan 03. nóvember 14:59
Gagnrýnir dóminn harðlega
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur gagnrýnir harðlega nýgenginn dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli þar sem refsingu yfir karlmanni í líkamsárásarmáli gegn konu hans var frestað, þar sem konan hefði átt sök á ofbeldinu. Í ályktun frá jafnréttisnefndinni segir að að látið sé að sök konunnar liggja í dómnum þar sem hún hafi reitt mann sinn til reiði. Jafnréttisnefnd Reykjavíkur telur dóminn senda hættuleg skilaboð til karla og kvenna og gera lítið úr alvarleika heimilisofbeldis og vonast hún til að Hæstiréttur taki öðruvísi á málinu.
|