|
8. nóvember 2001
Sæl Dísa. Mig langar til að senda þér baráttukveðju, þú ert hetja. Það fór um mig hrollur þegar ég las bréfið þitt, og þvílík hetja sem þú ert! Ég hef því miður engin ráð, en ég get fullyrt að það eru ekki allir karlmenn svona. Ég er búin að vera í sambandi með sama manni í 20 ár og hann er yndislegur.Ég heyri ekkert nema hvatningu og hrós fyrir alla skapaða hluti frá honum. Ég dáist af hugrekki þínu fyrir að brjótast út úr þessu sambandi og síðast en ekki síst fyrir það að opna umræðuna um þessi mál, öðrum til hjálpar.
Kveðja, Margrét
Sæl Dísa
Ég hef enga reynslu af heimilisofbeldi,og veit því ekki hvað þú hefur gengið í gegnum. Hvet þig til að láta drauma þína rætast!!
Kveðja Þórunn
Kæra Dísa
Ég hélt alltaf að mitt líf væri slæmt en ég sé eftir að hafa lesið reynslusögurnar að mitt líf hefur verið dans á rósum. Ég varð vissulega fyrir mótlæti í æsku af föður sem ekki kunni að ala upp barn og af móður sem ekki kunni að sýna tilfinningar en það er held ég vegna þess uppeldis sem þau fengu.... En það mótlæti sem ég fékk hefur aðeins styrkt mig ég lærði að segja hingað og ekki lengra og berjast á móti ég læt núna engan vaða yfir mig ég svara fyrir mig. Mér finnst ég vera heppin, núna er ég viss um að ég á bestu fjölskyldu sem til er. Litla systur sem betur fer slapp við allt ofbeldi því þau lærðu á mér að það þýddi ekki að berja barn til hlýðni. Unnusta sem dýrkar mig og foreldra sem geta ekki beðið efir að verða afi og amma. En ég vil segja við alla sem lenda í mótlæti: berjist gegn því það er sama hvað fólk segir það á enginn skilið að vera barinn né beittur ofbeldi á neinn hátt. Allir eiga það besta skilið og þeir sem beita ofbeldi, ég meðaumkva þá því þannig fólk eru aumingjar sem ekki hafa kjark í sér til að horfast í augu við sjálfan sig og það sem þeir eru: Skrímsli. baráttu kveðja Mæja.
Sæl.. Þar sem þögnin gerir ekkert annað en vernda gerandann þá finnst mér að blöðin eða þá spjallþættir séu besta leiðin til að koma af stað umræðu.. Friðhelgi heimilisins er svosem ágæt en því miður er það vettvangur fyrir aumingja eins og þinn fyrrverandi. Hugsunarhátturinn verður bara að breytast fyrst. Mér finnst að fólk sem lendir í svona löguðu verði að fá styrk frá þjóðfélaginu, þeas, að þolandinn gangi ekki með þá vitleysu í hausnum að kenna sér um allt sem aflaga fer. Fólk verður að vera raunsætt og líta ekki á sig sem fórnarlömb heldur aðeins fólk sem hefur orðið í veginum fyrir andlega sjúkum einstaklingum. Það verður að koma fram að gerandinn er sá sem þarf að skammast sín, engin annar, hvað þá síður þolandinn. Ef hlutirnir væru réttir í þjóðfélaginu þá myndi engin láta bjóða sér annað eins.... að ein mannvera geti haft svo mikil áhrif á aðra að henni finnist hún vera einskis virði og láti fara með sig eins og skynlausa skepnu. Nú lenti ég í annars konar ofbeldi í æsku.... kynferðislegu, en það merkilega við þetta allt saman var að ég var alltaf meðvituð um að ég hefði ekkert gert rangt og það væri faðir minn sem væri sá sjúki. En það sem var verst, ótrúlegt en satt, var að þegar þetta spurðist út þá fór kjaftagangurinn og augngoturnar verr með mig heldur en nokkurn tímann það sem ég þurfti að þola frá því ég mundi eftir mér til tólf ára aldurs. Fólkið í kringum mig lét mér líða eins og glæpamanni, þangað til að ég rankaði við mér aftur. Þú verður að muna að þú gerðir ekkert rangt og það er auka bónus fyrir þinn fyrrverandi ef þú lætur þetta eitra allt þitt líf. það sem drepur þig ekki, styrkir þig. Berðu höfuðið hátt.. eins og ég geri :) og láttu fólk sjá að ef þig langar til að tala um þessi mál þá bara gerir þú það. Rétturinn er allur þinn megin. "Engin" hefur meiri rétt á einu eða neinu heldur en þú og alls ekki vera að vernda þetta gerpi með því að þegja. Þetta er soldið sundurlaust bréf hjá mér en ég vona að það hafi skilist sem ég var að reyna að koma til skila. Maður verður að berjast fyrir tilverurétti sínum hérna á jörðinni.
Gangi þér vel að byggja upp rústirnar eftir þinn fyrrverandi, þú hlýtur að vera einhversstaðar undir þeim.
Finna
Sæl Dísa,
Og takk fyrir þarft bréf.. eða það finnst mér sem er með smá svarta fortíð bæði andlegs og líkamlegs ofbeldis, ég var í þessu helvíti í 20 ár. Og átti á því tímabili 5 börn, þú veist börnin mundu "laga þetta allt"... eða þannig. Ekki er ég viss hvernig hægt er að opna umræðu um þessi mál en það er þarft verk. Því það eru svo margir þarna úti sem þekkja ekki annað og halda að ekkert líf sé fyrir utan ofbeldið og engum þyki vænt um þá.
Kveðja Helga
9. nóvember 2001
Halló!
Ég fékk bréfið þitt sent í tölvuna mína í vinnunni og vil senda þér mínar bestu hugsanir og krafta. Ég mun minnast þín í bænum mínum sem ég fer með ákvöldin þessa dagana. Ég samhryggist þér innilega með erfitt lífshlaup en samgleðst þér enn meir fyrir að vera svona mikil og stór manneskja sem þú greinilega ert. Það eru ekki margir sem eru svona hugrakkir og duglegir eins og þú. Þetta segi ég og þekki þig bara í gegnum þessar línur sem ég las frá þér. Þannig að þú hlýtur að vera enn meiri manneskja fyrir þá sem þekkja þig betur.
Gangi þér allt í haginn, kveðja, Rannveig
10. nóvember 2001
FRÁBÆRT HJÁ ÞÉR!!!!!!!!!!!!!!!!
ÉG ER EIN AF ÞESSUM KONUM SEM HEF VERIÐ Í OFBELDISSAMBANDI OG ER AÐ VINNA MIG ÚTÚR ÞVÍ. MÁLIÐ ER EINMITT ÞETTA: GERANDINN SLEPPUR ALLTOF VEL FRÁ ÞVÍ AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á GERÐUM SÍNUM. ÉG HEF ÞURFT AÐ LEITA TIL LÖGREGLUNNAR,OG ÞAÐ VAR EINS OG ÞAÐ VÆRI ÉG SEM VÆRI SÚ BILAÐA! MINN FYRRVERANDI (VAR) ER Í NEYSLU ALLAVEGANNA EFNA, OG ER ORÐIN ILLA FARINN Í HAUSNUM Á ÞVÍ. HANN ER SVO SANNFÆRANDI LYGINN AÐ ÞAÐ ER MEÐ ÓLÍKINDUM! LAUG BARA Á LÖGREGLUSTÖÐINNI.ÞEGAR HANN VAR HIRTUR AÐ ÉG VÆRI Í EITURLYFJUM, RAUNVERULEIKASKERTUR GEÐSJÚKLINGUR OFL. AF ÞVÍ AÐ ÉG BJÓ MEÐ HONUM, HÉLT FÓLK AÐ ÉG VÆRI Í ÞESSU RUGLI LÍKA. MÉR FANNST SVO SKRÍTIÐ AÐ ÞEGAR ÉG REYNDI AÐ TALA VIÐ LÖGR. VAR EINS OG ÉG VÆRI AÐ TALA VIÐ VEGG!!!!!!!!!!! ENGIN VIÐBRÖGÐ. ENDAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ SYSTIR MÍN FÓR OG RÆDDI VIÐ YFIRL.ÞJÓN AÐ ÝMISLEGT KOM Í LJÓS! ÞESSIR LYGNU RAUNVERULEIKASKERTU DÓPISTAR KOMAST UPP MEÐ AÐ EYÐILEGGJA FYRIR MANNI ALLSTAÐAR!!!!!!!!!!
ÉG GÆTI SKRIFAÐ HEILA RITGERÐ UM ÞETTA RUGL,EN LÆT STAÐAR NUMIÐ NÚNA.
P.S.ÆTTI AÐ SENDA LÖGREGLUNNA Á NÁMSKEIÐ Í MEÐFERÐ KVENNA SEM HAFA VERIÐ OG ERU Í OFBELDISSAMBANDI! MEÐ ÓLÍKINDUM HVERNIG ÞEIR TAKA Á MÓTI MANNI!!!!!
JÆJA TAKK FYRIR AÐ VERA SVONA HUKKRÖKK FYRIR OKKUR ALLAR!!!!!!
BYLGJA
Ég verð að segja þér það að ég fór að gráta þegar ég las söguna þína. Sjálf er ég með yndislegum strák, sem hefur bara hjálpað mér í gegnum erfiða lífsreynslu- í raun eru "recovery" mjög svipuð; mín fjölskylda splundraðist þegar faðir minn hélt framhjá og allt varð vitlaust, það sem ég á við er það að vantraust og lélegt sjálfsálit eru hluti af því. Sjálf er ég komin mjög stutt á leið, en á þó erfiðast með sjálfsálitið og traustið. Ef þú ert með einhverjar ábendingar um það hvernig ég get byggt það upp, endilega að meila það á mig: ********** Það var hins vegar annað sem að mig langaði að koma að, ég verð að segja að styrkur þinn er í raun orðin svo sterkur einfaldlega vegna þess að þú hafðir þor til að setja þetta á netið og senda út í e-mailum. Ég vona bara að þú náir takmarki þínu því það er bara góðs viti að fá umræðu í þjóðfélagið um þessi hrikalegu mál sem ganga á á fleiri heimilum en menn grunar. Stelpa sem ég þekki var misnotuð og barin (þá meina ég virkilega barin) hún á enn þann dag í dag, við erum að tala um 15 árum seinna, í erfiðleikum með samskipti við fólk. Þetta er bara eitt dæmi um afleiðingu þess að það sé trampað á þínum rétti til að vera heilstæð persóna.
Þú hefur allan minn styrk á bak við þig, þú mátt hafa samband ef eitthvað kemur upp. Að mínu mati þá hefur þjóðfélagið gott af því að vita hvað er í gangi, hvernig má koma í veg fyrir ef það er hægt, en allaveganna að fólk viti hvert það geti leitað, og svo framvegis. Mér þykir það leitt að þú hafir ekki getað komið í Sirrý-því að oftar en ekki verður mikil umræða í kringum þættina, og þar sem málefnin eru misjöfn verður mismikil alvara úr þeim. Við erum að tala um háalvarlegt mál sem verður að fræða fólk um.. Það skiptir líka máli að fólk vita að eðlilegar heimilis-aðstæður innihalda ekki ofbeldi. Stelpan sem ég sagði þér frá áðan, hún elst upp við þessar aðstæður og getur ekki með nokkru móti gert sér grein fyrir því að þarna væri eitthvað í gangi sem ætti nú helst ekki að vera. Annað sem mér þykir því miður leitt er að ofbeldi er miklu algengara en maður heldur, umrædd stelpa er ekki eina dæmið um ofbeldi á heimilum, því önnur mjög góð vinkona mín var í sambandi við ofbeldisfullan strák- og eins og í þinni sögu þá byrjaði þetta allt með áfengi, það var ekki fyrr en að hann var kominn með hníf upp að hálsi hennar og lögreglan ruddist inn að hún áttaði sig á því að hún ætti miklu betra skilið. Eins og þú sérð þá er þetta mér mikið hjartans mál, og ég vona af öllu mínu hjarta að þú fáir þínu framgengt.. Kær kveðja Ingunn
p.s þetta er svolítið snubbótt, enda er ég í vinnunni og var að grípa í skriftirnar svona í og með..
21. janúar 2002
Ég vildi bara segja "gangi ykkur vel" Ég vona að með virkari þjóðfélagsvitund verði hægt að stemma stigum við ofbeldi á konum. Reyndar heyrði ég mjög skemmtilega pælingu varðandi nauðganir ekki alls fyrir löngu sem var notuð til að stemma stigum við nauðgunum í eyjum um Verslunarmannahelgina. Þessi pæling gekk út á það að fræða karlmenn, Hugsunin var sú að oft eru nauðganir um verslunarmannahelgina framdar í öl æði. þá var reynt að gera ungum mönnum grein fyrir því að það að vera nauðgari er stimpill sem ekki þvæst af þér nokkur tíma. Mér datt í hug að kannski væri hægt að nota þessa pælingu eitthvað varðandi þá karlmenn sem beita konur sínar ofbeldi. Einhvernvegin get ég ímyndað mér að þessir karlmenn eigi við vandamál að stríða sem þeir þurfa hjálp með. Ég held að enginn vilji vera vondi karlinn, þeir vita kannski ekki betur og kunna bara ekkert annað. Það er kannski komin tími á að hjálpa þessum greyjum og fræða þá, því að þó að ein kona skilji við einn bastarð þá er nokkuð ljóst að hann er kominn aftur á markað innan skamms og önnur kona gæti átt það á hættu að lenda í honum. Bara pæling. gangi ykkur vel
Gummi
22. janúar 2002
Sæl vertu
Mig langar til að segja þér að ég horfði á viðtalið við þig á stöð 2 í kvöld fyrir algera tilviljun, þar sem ég horfi yfirleitt aldrei á fréttirnar þar.
Ég dáist að því hvað þér tókst vel að lýsa þinni reynslu. Mér finnst þú sýna ótrúlegt hugrekki að koma svona fram, ég gerði það sjálf á sömu stöð árið 1989 í þætti sem hét ,,Bak við byrgða glugga” og var á vegum Kvennaathvarfsins. Það var ótrúlegt hvaða viðbrögð ég fékk frá mörgum á eftir. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir hvað sjónvarpið er sterkur miðill og hvað viðbrögð karlasamfélagsins geta verið kröftug. Sumir fordæmdu mig, aðrir hrósuðu mér, sumir jafnvel góðir vinir mínir og fólk úr minni eigin fjölskyldu þögðu þennan þátt í hel eða létu eins og þeir hefðu ekki séð hann. Mig langar bara að biðja þig að efast aldrei á næstu dögum, þó viðbrögð sumra verði kannski önnur en þú hafðir haldið. Efastu aldrei um að það sem þú ert að gera er rétt, þú gerir það bæði vel og fallega. Þú ferð þína leið til að vinna þig í átt að þroska og hefur fullan rétt til þess.
Það er betra að tala um ofbeldi en að byrgja það inni. þá má líkja reynslunni við graftarkýli sem getur sprungið hvenær sem er.
Mig langar til að óska þér og þínum gæfu og velfarnaðar í lífinu og gangi þér allt í haginn.
Kærar kveðjur.
Ninna
Sæl Hjördís það gladdi mig mjög að sjá þig á stöð2 í gær Við vorum nú góðar vinkonur þegar við unnum saman í Hagkaup. Mér finnst þú alger hetja að hafa losað þig út úr þessu sambandi. Það væri nú gaman að heyra í þér,, ég bý rétt hjá þar sem þú bjóst í þá gömlu góðu daga??Jæja kveðja og vonandi heyri ég frá þér sem fyrst
Kæra Dísa
Mig langaði til að benda þér á nýjan link, unifem.is, þar er að finna ýmiss konar greinar um menningartengt ofbeldi gegn konum. Svo vil ég bara senda þér hamingjuóskir og lýsa því yfir hvað ég var hissa að sjá þig á Stöð 2 því ég hef sjálf verið að vinna á Skjá 1 og langaði mikið til að taka viðtal við fólk sem hafði lent í ofbeldissambandi en ég held að þú sért frumkvöðull því ég hef aldrei séð neinn tala um þetta í sjónvarpi áður og þetta er það sem þarf að konur rísi fram að þær óttist ekki um eigið líf við að segja frá eða vilji hlífa þeim karlmönnum sem hafa ekki hlíft þeim í tugi ára. Svo ég segi bara FRÁBÆRT FRUMKVÖÐLASTARF : )
Hafðu það gott... Ef þig langar að búa til þátt og veist um konur sem væru til í að segja frá. Hafðu þá bara samband og ég og bróðir minn mætum með myndavél og mígrafón... Kveðja
Sæl Hjördís
Þakka þér fyrir að koma fram í sjónvarpinu í gær. Þú hefur örugglega hjálpað mörgum. Mér fannst þú sýna mikinn kjark. Ég hafði þó nokkuð fyrir að finna heimasíðuna þína. Fór ýmsar krókaleiðir hjá Stöð 2. Ég náði nefnilega ekki stöfunum þremur fyrir aftan STYRKUR. Langaði bara til að senda þér þakkir fyrir að deila þessu með okkur. Það eru svo margir í okkar þjóðfélagi sem vilja loka augunum fyrir heimilisofbeldi. Því fleiri sem opna sig því betra og líklegra að hægt verði að uppræta þennan ófögnuð. Ungar stúlkur átta sig t.d. ekki á andlega ofbeldinu. Forleiknum fyrir kjaftshöggin. bestu kveðjur, Helga
Sæl Hjördís Þakka þér fyrir að koma fram í sjónvarpinu í gær. Þú hefur örugglega hjálpað mörgum. Mér fannst þú sýna mikinn kjark. Ég hafði þó nokkuð fyrir að finna heimasíðuna þína. Fór ýmsar krókaleiðir hjá Stöð 2. Ég náði nefnilega ekki stöfunum þremur fyrir aftan STYRKUR. Langaði bara til að senda þér þakkir fyrir að deila þessu með okkur. Það eru svo margir í okkar þjóðfélagi sem vilja loka augunum fyrir heimilisofbeldi. Því fleiri sem opna sig því betra og líklegra að hægt verði að uppræta þennan ófögnuð. Ungar stúlkur átta sig t.d. ekki á andlega ofbeldinu. Forleiknum fyrir kjaftshöggin. bestu kveðjur, Helga
Sæl Dísa og takk fyrir svarið! Já auðvitað máttu birta þetta á síðunni þinni, ef þú heldur að það geti hjálpað einhverjum, til þess var þetta nú skrifað :o) Vona að þú haldir áfram að gera þessa góðu hluti. Vil líka minnast á að það er frábært að sjá hvað þú svarar fljótt, það sýnir að þú fylgir eftir því sem þú ert að gera og ennfremur hversu miklu máli þetta skiptir þig. Takk takk
26. janúar 2002
Sæl Hjördís
Ég horfði á þig í sjónvarpinu áðan og fékk hnút í magann. Það var eins og þú værir að lýsa því sem ég bjó við í 12 ár. Ég virkilega dáist að hugrekki þínu og vil endilega fá að vera með í að stofna þessi samtök.
Kveðja, Jóhanna
27. jan. 2002
Hæ hæ.
Ég var að lesa þessar sögur ykkar og þær eru ógeðslegar. Hvernig geta konur látið bjóða sér þetta?
Ég var í sambandi við konu sem hagaði sér eins og maðurinn í einni sögunni sem ég las á síðunni ykkar. Hún var lygin og ómerkileg. Hún sagði eitt í dag og annað á morgun. Hún átti 3 börn með fyrri manninum. Hún var ekki með forræðið yfir þeim.
Hún laug að börnunum og manninum og mér líka, henni var ekki treystandi. Ég lagði aldrei hendur á hana. Ég gafst upp eftir 9 mánuði, lánaði henni peninga sem hún lofaði að borga, til að hún kæmi undir sig fótunum aftur, en þá hef ég ekki séð ennþá og eru liðin 9 ár síðan. Mér er alveg sama því ég er laus við hana.
Svo er eitt enn. Hún tengdamamma hún er búin að vera í sambandi við mann sem hefur beitt hanna ofbeldi bæði líkamlegu og andlegu í 25 ár. Hvað er hægt að gera? Hún hefur ætlað að fara en þorir ekki fyrir hótunum hans. Þau eiga saman 4 börn á 20 ára tímabili.
15 apríl 2002
Sæl
Ég mætti á stofnfundinn og það var mjög góður fundur og ég dáist að ykkur sem stóðuð að þessu. Ég losaði mig út úr ofbeldisfullu 16 ára löngu sambandi í fyrra sumar og ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu ofbeldisfullt það hafði verið fyrr en ég var búin að lesa upp til agna allt sem þið létuð liggja frammi á fundinum.
Svona lesefni þyrfti að liggja frammi t.d. á heilsugæslustöðvum, því að það sem fjötrar mann mest er efinn um mann sjálfan og það var ekki fyrr en ég fór í gegnum tékklistana frá ykkur sem ég raunverulega horfðist í augu við það hvað ég hafði verið illa stödd.
Kveðja
|