|
Tólf atriði sem benda til þess að maki/kærasti beiti þig ofbeldi
Fljótlega eftir fyrstu kynni byrjar hann að stjórna hraðanum á þróun mála og kemur með ótímabær áform um að þið eigið eftir að vera lengi saman, hefja sambúð og jafnvel ganga í það heilaga innan tíðar.
Hann notar frasa eins og að „eilífu“, „alltaf“ eða „sama hvað gerist“ en það gerir þér erfitt fyrir ef þú vilt hægja á þróun sambandsins.
Þegar þú ert farin að vísa á bug efasemdum og kvíða mjög snemma, gæti það stafað af ótta við að hann muni særa þig eða að óljósri tilfinningu um að ekki sé allt með felldu.
Skap hans sveiflast til og frá. Þú tiplar í kringum hann eins og köttur í kringum heitan graut því þú veist aldrei hvað kemur honum uppnám.
Hann verður afbrýðisamur út af öllu og öllum sem þú eyðir tíma með og/eða krefst þess að fá lýsingu á hverju andartaki sem hann er ekki með þér.
Orðbragð hans er ruddalegt og hann notar hótanir til að særa þig, niðurlægja, heftir frelsi þitt og veður yfir þig þegar þið deilið.
Hann lemur og brýtur hluti þegar þið rífist og notar táknrænt ofbeldi eins og að skemma ljósmyndir eða eyðileggja persónulega hluti fyrir þér.
Hann meðtekur ekki höfnun og lítur svo á að sambandið muni ganga eins lengi og hann vill.
Hann tengir allt í lífi sínu við þig. Segir setningar eins og „án þín væri tilgangslaust að lifa“. Þetta er ekki ást, þetta kallast þráhyggja.
Hann notar peninga til að stjórna þér.
Hann gerir lítið úr ógnvænlegum atburðum með því að segja að slíkt gerist bara einu sinni og aldrei aftur. Hann reynir að sannfæra þig um að hann sé ekki ofbeldishneigður, stundum gerist bara eitthvað á milli ykkar sem þú ert meira ábyrg fyrir.
Hann kennir öðrum um hvernig hann er. Foreldrar rugluðu hann í ríminu eða það er þér að kenna að hann varð ofsalega reiður.
|